bla
bla
janúar 11, 2007 af leggjalong-1,6 núna
október 11, 2006 af ragnheidurharpaég náði ekki markmiðinu í síðustu viku en ég náði því núna og gott betur….ætlaðu í síðustu viku að vera 76 en var 77 en núna var ég 75,4 þannig ég er sátt
jeij
október 7, 2006 af gellanHæhæ, ætlaði bara að láta vita af því að ég náði markmiðinu mínu fyrir 1. október en það var 82,75 kg
Næsta markmið (fyrir 1. nóv) er 81,5 kg!
-700gr þessa vikuna…humm…
september 27, 2006 af ragnheidurharpaþá eru 1,1 eftir….fyrir næstu vigtun….hummm….bara vera bjartsýn ekki satt….
ég er svo sem ánægð með mín 700gr……..
1,9 kg
september 22, 2006 af 75kgJæja, eftir fyrstu viku í 4 vikna áskorunni minni fóru hvorki meira né minna en 1,9 kg, ætlunin er að ná 4 kg á fjórum vikum, þannig að 2,1 kg þurfa að fara á næstu 3 vikum, hlakka svo til að sjá hvort að það gengur! En já ætlaði bara að láta vita hvernig gengur hjá mér!
Mig vantar líka aðstoð
september 15, 2006 af ragnheidurharpaÉg er eins og hún 75kg…..næ ekki að setja inn í áskorunina….það fraus allt hjá mér þegar ég var að reyna það….þannig það væri æðislegt ef eitthver gæti sett það inn fyrir mig líka
Mín markmið til fyrsta okt er að missa 2 kíló ég er 78 kíló
september 15, 2006 af 75kg
Ég er svo ótrúlega ótæknivædd, þannig að ef einhver kann að setja mig og mín markmið inn í nýju áskorunina, yrði ég ótrúlega ánægð. En já ég ætla að vera frá 15. til 15. og ná af mér 4 kg, stór markmið fyrir stóra stelpu, hehe!
er semsagt 89.5 núna og stefni á 85,5
Ný áskorun ;)
september 13, 2006 af sperraJæja, ég bjó til nýja áskorunarsíðu sem er hér til hliðar: Áskorun II.
Endilega setjið inn ný markmið, ég sjálf var í tómu tjóni í fyrstu áskoruninni en ætla að standa mig betur núna
-600gr
september 13, 2006 af ragnheidurharpaþessa vikuna…..og hef ég bara 2 vikur til að missa 3 kíló…úppphhhh…..það er nánast ómögulegt en ég held enn í vonina….og geri allt til að þessi 3 kíló fari…..hehe…..ég verð þó ekkert vonsvikin ef það tekst ekki….en ég er ekki búin að dæma það dautt…..en á dánarbeðinu
Markmið
september 11, 2006 af gellanNú veit ég ekki alveg hvernig hugmyndin var að hafa þessa áskorun – allavega var 10. september í gær og ég stóð í stað síðasta vigtunardag, var aftur 83,9 kg – sem þýðir að ég hef lést um 800 g í stað 2 kg í þessari áskorun. Oh well.
Annars bjó ég mér til langtímaplan en það miðast við að léttast um 15 kg á einu ári og vera þannig komin niður í 69 kg þann 1. september 2007. Þetta eru ekki nema 1,25 kg á mánuði sem ég þarf að losna við sem er ekki mikil pressa en litlu skrefin safnast saman, auk þess gæti ég trúað að þetta væri raunhæfur hraði miðað við hlutina sem ég er að gera (ekkert DDV eða rækt 6 sinnum í viku o.s.frv.). Miðað við þetta plan ætla ég að vera orðin 82,75 kg þann 1. október þannig að það er markmiðið mitt fyrir næstu áskorun ef það er ætlunin að halda þessari síðu gangandi.
Hvað segið þið hinar?